Hvað viltu bóka?

L
Lift Summum
60 mín
•
19.200 kr.
Lift Summum andlitsmeðferð gerir húðina stinnari, dregur úr þreytu og öldrunarmerkjum á andliti, hálsi og bringu. Meðferðin er samblanda af einstaklega virkum innihaldsefnum sem auka stinnleika og þéttleika húðar ásamt sérstöku nuddi. Eftir 50 mínútur er húðin á andliti, háls og bringu stinnari og þéttari.
H
Hydradermie
75 mín
•
19.900 kr.
Einstök djúpvirkandi tækni með háþróað Hydraderm meðferðartæki. Andlitsmeðferð sem endurnýjar húðina með því að endurheimta frumuorku unglegri húðar. Meðferðarsvæði eru: andlit, augu, háls og bringa. Sérvalin Hydradermie innihaldsefni vinna í húðinni í 24 tíma að lokinni meðferð. Hentar húð sem er: Rakaþurr | Þurr | Þroskuð | Viðkvæm | Fituglans | Litabreytingar | Rakamettar og nærir dýpri húðlög. Róar viðkvæma og erta húð. Hreinsandi fyrir feita húð. Dregur úr brúnum blettum. Húðin fær fallegri áferð, aukin ljóma og heilbrigði.
H
Hydradermie lift
75 mín
•
19.900 kr.
Með aldrinum missir húðin stinnleika sinn og útlínur slakna. Einstök tækni, tvíþætt virkni meðferðar, sogæðaörvun og vöðvaþjálfun á andliti með Hydradermie meðferðartæki. Hydradermie Lift mótar og stinnir andlitsvöðvana. Á aðeins nokkrum mínútum verður húðin stinnari, sléttari og frísklegri. Eftir fyrstu meðferð muntu sjá sýnilegan árangur. Hrukkur á yfirborði og fínar línur hafa minnkað. Þetta er vöðvaþjálfun fyrir andlitið ("body building"). Fyrir góðan árangur er mælt með 6 til 10 skiptum.
E
Eye lift
45 mín
•
14.900 kr.
Öflug sérmeðferð fyrir augnsvæðið sem vinnur gegn hrukkum, þrota og baugum. Einstök tækni, vöðvaþjálfun með Hydradermie meðferðartæki. Augnsvæðið hefur fengið lyftingu, dregið hefur úr fínum línum, þrota og baugum. Meðferðin styrkir augnsvæðið og endurnýjar frumustarfsemi húðar.
H
Hydra Peeling andlitsmeðferð með sýru
60 mín
•
17.900 kr.
Endurnýjun húðar á 45 mínútum. Meðferðin er sniðin að styrkleika húðgerðar: Hydra Peeling - Hydra PH er fyrir allar húðgerðir (unnið með AH, BH & PH sýrur). Hydra Peeling - Hydrabrasion er fyrir viðkvæma húð (unnið með sellulósa og ensím). Hydra Peeling meðferðin: Dregur úr aldurseinkennum, fínum línum og hrukkum Eykur ljóma, áferðarfallegra og sléttara yfirborð húðar Dregur úr brúnum blettum, vinnur á litabreytingum Eykur endurnýjun húðar. Húðin verður áferðarfallegri, ljómi húðar eykst, húðin verður mjúk og endurnærð.
A
Age Summum
60 mín
•
23.200 kr.
GUINOT, sérhæfir sig í húðumhirðu gegn öldrun og hefur þróað einstaka meðferð. Hún vinnur á efri og neðri húðlögum gegn öldrun á andliti, hálsi, bringu og höndum. Meðferðin vinnur á hrukkum, slappri húð sem skortir stinnleika, dökkum blettum og tapi á ljóma. Í Age Summum meðferðinni er unnið með einstaklega virk efni og sérhannaðar nuddhreyfingar sem skila sjáanlegum árangri á aðeins 50 mín. Í lok meðferðar hefur dregið sjáanlega úr aldurseinkennum, hrukkum og brúnum blettum. Húðin fær aukinn ljóma, verður unglegri og stinnari.
D
Detoxygene
60 mín
•
18.900 kr.
Súrefnismettun og hreinsun fyrir húðina. Óæskilegt magn úrgangsefna getur sest á yfirborð húðar og dregið úr frískleika hennar, húðin missir ljóma sinn. Þættir sem geta haft áhrif eru t.d. mengun, sýklar, ryk, lífstíll, streita, svefnleysi, mataræði o.fl. Eftir 60 mín meðferð eykst súrefnisupptaka húðar og húðin hreinsuð af úrgangsefnum. Detoxygene meðferð er góður undanfari fyrir aðrar GUINOT andlitsmeðferðir þar sem húðin verður móttækilegri fyrir virkum efnum. Húðin starfar eðlilega á ný, er frískleg, mjúk, hrein og ljómi hennar hefur aukist.
H
Hydra Summum
60 mín
•
22.800 kr.

Hydra Summum
22.800 kr.