Íslenska
Sigríður Elín hefur alltaf verið næm og hefur verið í andlegum málum í ytfir tuttugu ár. Hún hefur verið í þróunarhringjum og þannig lært að þróa með sér miðilshæfileika sína, Sigríður starfar sem miðill og heilari. Heilun með miðlun er mjög àhrifarík meðferð með einstaklingsmiðuðum tímum sem samanstanda af skilaboðum frá ættingjum og/eða leiðbeinendum sem koma með mikilvæg skilaboð varðandi heilsu, fjölskyldu, einkalíf, vinnu eða skóla. Þá er einnig mikil heilun í gangi á meðan á tímanum stendur, bæði líkamleg og andleg ásamt leiðsögn og svörum að handan hvað varðar þá hluti sem skipta mestu máli fyrir viðkomandi. Hún býður einnig upp á heilun dýra í heimahúsi eða þar sem dýrið er statt. Sigríður Elín býður upp á tíma á ensku fyrir þá sem þurfa.