Hvað viltu bóka?
Inflúensusprauta | Forgangshópar
15 mín
Lyfjafræðingar og hjúkrunarfræðingar Lyfju bjóða inflúensubólusetningar fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem tilheyra skilgreindum forgangshópum. Bólusetningin er án endurgjalds fyrir einstaklinga í forgangshópum en þeir eru:
· Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
· Fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
· Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
· Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu
Athugið að barnshafandi konum er vísað í mæðravernd vegna inflúensubólusetningar.