Íslenska
Þremur elstu árgöngum í leikskólunum stendur til boða að koma í sögustund virka daga fyrir hádegi en bóka þarf tíma. Hópastærð er yfirleitt á bilinu 8-10 börn en betra er að hafa hópinn ekki mjög fjölmennan svo börnin njóti heimsóknarinnar betur. Það er von okkar að með þessum heimsóknum kynnist börnin safninu sínu og að það verði fastur liður að koma í heimsókn, bæði til fróðleiks og skemmtunar.
Þremur elstu árgöngum í leikskólunum stendur til boða að koma í sögustund virka daga fyrir hádegi en bóka þarf tíma. Í tvöfaldri sögustund bjóðum við leikskóladeildum að koma með stærri hópa (ca. 14-20 börn) og skipta honum í tvennt í safninu. Annar helmingur hópsins fær þá sögustund á meðan hinn dvelur í barnahorni. Þegar sögustund er lokið hjá fyrri helmingi hópsins er skipt.